22.8.2007 | 08:12
Afbrigðileg keppnisíþrótt?
Er það bara ég eða hljómar þetta allt frekar perralega? Þegar ég heyri orðið "hrútaþukl" dettur mér því miður aðeins eitt í hug og það hræðir mig að fólk skuli keppa í slíkum verknaði. Þuklaraball hljómar svo eins og kjörinn vettvangur fyrir sveitta perra til að þukla á gestum og gangandi..
Ég myndi allavega hugsa mig um tvisvar áður en ég færi eitthvað að þvælast til Hólmavíkur næstu helgi...
![]() |
Hrútaþukl og þuklaraball á Ströndum um helgina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hehe, fyrir sauðfjárfólk hljómar þetta örugglega mjög eðlilega í eyrum þar sem fé er metið að verðleikum eftir því hve vel það kemur út í stigun (þuklun um alla vöðva). Þú ættir að skella þér á sauðfjárræktarsýningu einhvern tímann og kynna þér málið
Það skiptir ekki máli hvaða nöfnum hlutirnir heita þegar perrar úr borg og bæ eru annars vegar. Þeir þukla nú örugglega ekkert frekar á þuklaraballi en annars staðar, en kannski finnst fleirum það "eðlilegt" á svona samkomu
Helena (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 08:36
Flokkast þetta ekki undir dýraklám? Er eitthvað óvenju fátt kvenfólk í Hólmavík? Er þetta eitthvað örþrifaráð, sem menn hafa gripið til, af því að dýraklámsspólur eru bannaðar hér á landi? Mér fyndist nú nær, að lögreglan stöðvaði þetta, frekar en saklausan súludansinn á Goldfinger. Í dýraverndunarlögum stendur, að bannað sé að hrekkja eða meiða dýr. Ja, ég ætla nú rétta að vona, að þetta eigi ekki eftir að verða þjóðaríþrótt Íslendinga.
Stebbi (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 11:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.